Nighthawk fluguhnýtingar myndband | Flugusmiðjan
Yður gefst nú áhorfandi góður loksins kostur á að styrkja rásina og hann Ívar Örn fyrir alla vinnuna, tímann og fyrirhöfnina sem liggur að baki. Þetta getur þú gert í gegnum PayPal-linkinn, eða ýtt á “SúperTakk” takkann.
Í þessu myndbandi hnýtum við rómaða laxaflugu sem er löngu orðin nafntoguð bæði fyrir fegurð síma og svo fyrir þann árangur sem hún hefur náð í laxveiði. Flugan hefur verið til í meira en 100 ár og kom fram á sjónarsviðið fyrir aldamótin 1900. Nafn flugunnar Nighthawk er komið til vegna þess að höfundur hennar þótti nokkuð mikið uppá kvenhöndina og var þekktur fyrir að tæla ungar konur til sín að næturlagi. Þessi iðja Stanfords varð á endaum til þess að hann var myrtur á næturklúbbi við Madison Square Garden í New York þann 25. júní 1906. Þá má geta þess að flugan Nighthawk var ein af uppáhaldsflugum Orra Vigfússonar sem var stofnandi og formaður Verndarsjóðs Villta laxastofna (NASF). Ég hugsa að fólk átti sig ekki ennþá á því hversu mikilvægt verk Orri heitinn vann til þess að vernda villtu stofnana af laxi sem synda frjálsir um höfin. Flugan Nighthawk er rómuð stórlaxafluga og ennþá nokkuð vinsæl meðal laxveiðimanna þótt aðferðir við laxveiðarnar hafi breyst í tímans rás. Flugan er ekki svo erfið í hnýtingu en krefst þó nokkurrar reynslu til þess að hnýta hana fallega. Æfingin skapar meistarann. Jafnframt má hýta Nighthawk sem straumflugu og kemur hún mjög vel út sem slík.
Uppskrift:
Höfundur: Stanford White.
Öngull: Ahrex HR428S #8
Þráður: UNI 8/0 rauður.
Broddur: UNI oval siflur.
Rass: ½ gult flos, ½ rauð ull fyrir framan.
Vöf: UNI silfur vír.
Stél: Hausfjöður af gullfasana
Búkur: UNI Mylar silfur.
Skegg: Svartur refur.
Vængur: Svartur refur.
Kynnar: Bekkfjöður af Jungle Cock + Asian Kingfisher (eða samkonar bláar fjaðrir).
Haus: UV Solarez Bone Dry.
Til þess að hjálpa okkur að stækka, vinsamlegast hendið “like” á myndbandið, gerist áskrifendur að rásinni og deilið.
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum:
Facebook: www.facebook.com/groups/IvarsFlyWorkshop
Instagram: www.instagram.com/ivarsflyworkshop
Twitter: twitter.com/FlyIvar
______________________________________________________________________________________
Í samstarfi við: Fluguveiði.is, Ahrex, Flyfishingwaters.com, og Semperfli.
fluguveidi.is & myrarkvisl.is/is/heim
www.ahrex.com
www.semperfli.net
Tónlist:
www.bensound.com
Tölvupóstur: flugusmidjan@gmail.com
#flugusmidjan #IvarsFlyWorkshop #AhrexHooks #Semperfli_Flytying #fluguveidi.is #flyfishing #fishing #flytying #catchandrelease #trout #troutfishing #browntrout #flyfishingaddict #flyfishingjunkie #flyfishinglife #fish #urridi #bleikja #lax #myrarkvisl #rainbowtrout #flytyingjunkie #troutbum #flyfishingnation #fishinglife #nature #outdoors #flytyingaddict #bassfishing #flugfiske #flyfishingphotography #onthefly #dryfly #flyfish #fish #fishingtrip #love #subscribe #like #share
Flugusmiðjan
Ívar’s Fly Workshop
©
Allur réttur áskilinn