Flæðarmús fluguhnýtingar myndband | Flugusmiðjan
Yður gefst nú áhorfandi góður loksins kostur á að styrkja rásina og hann Ívar Örn fyrir alla vinnuna, tímann og fyrirhöfnina sem liggur að baki. Þetta getur þú gert í gegnum PayPal-linkinn, eða ýtt á “SúperTakk” takkann.
Í þessu myndbandi hnýtum við Flæðarmúsina hans Sigga Páls. Flæðarmúsin er mögulega ein besta flugan úr smiðju Sigga en hann gerði margar frábærar flugur í gegnum árin. Flæðarmúsin er frábær sjóbirtingsfluga og er hjá mörgum fyrsta val á flugu þegar farið er í birting. Sjálfur hef ég náð fínum árangri með þessa glæsilegu flugu. Flugan er tiltölulega erfið í hnýtingu miðað við margar aðrar flugur, en æfingin skapar meistarann. Klárlega þess virði að láta vaða og reyna við að hnýta þessa glæsilegu flugu!
Uppskrift:
Höfundur: Siggi Páls.
Öngull: Ahrex NS118 #8.
Þráður: UNI 8/0 svartur.
Stél: Blár íkorni.
Kragi: Svartur strútur.
Búkur: ½ Hareline Dubbin silfur chenille og ½ rauð ull.
Vöf: UNI medium oval gull tinsel.
Skegg: Veniard hvítur bucktail og 3-4 rendur af silfur tinsel.
Vængur: Rauður bucktail + 2 rauðar hanafjaðrir + 2 grizzly hanafjaðrir.
Augu: Máluð á rauð með gulum augasteini.
Haus: Svartur.
Til þess að hjálpa okkur að stækka, vinsamlegast hendið “like” á myndbandið, gerist áskrifendur að rásinni og deilið.
Fylgdu okkur á Facebook: www.facebook.com/groups/IvarsFlyWorkshop
Fylgu okkur á Instagram: www.instagram.com/ivarsflyworkshop/
Fylgdu okkur á Twitter: twitter.com/FlyIvar
______________________________________________________________________________________
Í samstarfi við Ahrex hooks og Flyfishingwaters.com
www.ahrex.com
Tónlist í myndbandi: www.bensound.com
Email: flugusmidjan@gmail.com
#flugusmidjan #IvarsFlyWorkshop #flyfishing #fishing #flytying #catchandrelease #trout #troutfishing #browntrout #flyfishingaddict #flyfishingjunkie #flyfishinglife #fish #rainbowtrout #flytyingjunkie #troutbum #flyfishingnation #fishinglife #nature #outdoors #flytyingaddict #bassfishing #flugfiske #flyfishingphotography #onthefly #dryfly #flyfish #fish #fishingtrip #love #subscribe #like #share
Flugusmiðjan
Ívar’s Fly Workshop
©
Allur réttur áskilinn