Dentist fluguhnýtingar myndband | Flugusmiðjan
Yður gefst nú áhorfandi góður loksins kostur á að styrkja rásina og hann Ívar Örn fyrir alla vinnuna, tímann og fyrirhöfnina sem liggur að baki. Þetta getur þú gert í gegnum PayPal-linkinn, eða ýtt á “SúperTakk” takkann.
Í þessu myndbandi hnýtum við straumfluguna Dentist, sem er mögulega ein mest notaða straumfluga hér á landi og ein sú veiðnasta. Flugan veiðir allar tegundir ferskvatnsfiska að ál undanskildum, en Dentist er þekktust fyrir að vera topp urriða og sjóbirtingsfluga sem er löngu orðin nafntoguð enda búin að sanna gildi sitt sem slík. Einföld fluga sem má hnýta bæði úr hárum og fjöðrum og klárlega fluga sem ég mæli sterklega með að þú hafir með í boxi hjá þér. Þessa flugu hnýti ég með rauðu skeggi og skotti þar sem slíkt hefur reynst mér betur en appelsínuguli liturinn, sérstaklega í sjóbirting.
Uppskrift:
Höfundur: ?
Öngull: Ahrex NS118 #8.
Þráður: UNI 8/0 svartur.
Stél: Rauður kálfshali.
Vöf: UNI Oval gull tinsel.
Búkur: UNI Mylar flatt gull tinsel.
Skegg: Sama og í stéli.
Vængur: Svartur kálfshali eða íkorni.
Haus: Svartur.
Til þess að hjálpa okkur að stækka, vinsamlegast hendið “like” á myndbandið, gerist áskrifendur að rásinni og deilið.
Fylgdu okkur á Facebook: www.facebook.com/groups/IvarsFlyWorkshop
Fylgu okkur á Instagram: www.instagram.com/ivarsflyworkshop/
Fylgdu okkur á Twitter: twitter.com/FlyIvar
______________________________________________________________________________________
Í samstarfi við Ahrex hooks og Flyfishingwaters.com
www.ahrex.com
Tónlist í myndbandi: www.bensound.com
Email: flugusmidjan@gmail.com
#flugusmidjan #IvarsFlyWorkshop #flyfishing #fishing #flytying #catchandrelease #trout #troutfishing #browntrout #flyfishingaddict #flyfishingjunkie #flyfishinglife #fish #rainbowtrout #flytyingjunkie #troutbum #flyfishingnation #fishinglife #nature #outdoors #flytyingaddict #bassfishing #flugfiske #flyfishingphotography #onthefly #dryfly #flyfish #fish #fishingtrip #love #subscribe #like #share
Flugusmiðjan
Ívar’s Fly Workshop
©
Allur réttur áskilinn